Dagskrá
Föstudagur:
Hittingur, spjall og fleira á Nielsen frá
21.00 og frameftir án maka til að byrja með til að ná áttum og
svoleiðis. Makar svo velkomnir þegar líða tekur á kvöldið og
bekkurinn búinn að rifja upp gömul kynni.
Laugardagur:
Fjölskyldusprell og grill. Mæting kl. 12.00 í
Selskógi. Þar verður kveikt í grillum og pylsur matreiddar ofan í
mannskapinn. Eftir það er Kubbur tekinn fram, reglur kynntar og
skipt í lið. Síðan verður sprellað og leikið sér.
Diskótek og myndir og aðrar minningar skoðaðar
í Nýung frá 17.00-18.30. Minni alla á að reyna að koma í einni flík
sem þeir notuðu í grunnskóla. Einnig viljum við fá sem flesta hluti
tengda skólagöngu okkar sem og myndir. Ekki væri leiðinlegt ef fólk
myndi segja sögur eða koma með skemmtiatriði.
Klukkan 20.00 er svo mæting á Nielsen þar
sem matur verður reiddur fram og djammað fram á nótt.
Matseðill:
Eðal sjávarréttasúpa með
rjómatopp
Lambafille með Dijon-piparsósu.
Frönsk súkkulaðikaka með ís og
rjóma.
Sunnudagur:
Ekkert áætlað en ég hvet alla til að koma og
fylgjast með sumarhátíðinni á Vilhjálmsvelli, hver á ekki góða
minningu frá sumarhátíð á Eiðum... 
Áætlað er að hver borgi 4600 kr. sem er þá
bæði fyrir matnum á Nielsen og grilluðum pylsum upp í skógi (gæti
hækkað um einn eða tvo hundraðkalla en vonandi ekki).